LIVE FOREVER
Ýmislegt;)
05.09.2007 22:06:01 / Bryndís

123.is

123.is/buffalo allir að skoða þetta:) og taka þátt í skoðannakönnun;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 16:58:59 / Bryndís

Áfram VÖLSUNGUR :)

Jæja ákveð að koma með eitt blogg í tiliefni dagsins svona rétt á meðan maður lýtur uppúr skruddunum þar sem ég hef verið að lesa mikla skemmtun sem btw er á ensku, á borð við Mólikúl, Frumefni, efnasambönd, katjónir, anjónir og svo Lotukerfið eðlismassa, massatölu, sætistölu og öll þessi orð sem Gunni bald sagði með svo skemmtilegum SSSSS um ég sakna þess þegar ég sit á fyrirlestri að heyra ekki þessa miklu áherslu á s-onum eins og hann gerði svo skemmtilega kallinn! Ég hefði samt kanski mátt taka betur eftir á sínum tíma ef úti það er farið þar sem efnafræðin ætlar að reynast mér þung hér í Háskólanum en atli ástæða þess sé ekki einmitt sú að S-in hans Gunna glumdu svo hart í eyrum mér!!! maður spyr sig....... Svo ef einhver bíður sig fram í að koma og kenna mér efnafræði má sá hinn sami hafa samband;) Nóg um þetta........ Annars fer skólinn bara vel á stað hjá bæði mér á Hemma!!!! Mér lýst ekkert smá vel á mitt nám held að þetta verði alveg rosalega skemmtilegt!!!! Íbúðin okkar er mjg fín og það fer rosa vel um okkur og enginn smá munur að vera komin downtown;) Aðalmál dagsins er samt leikur Völsungs stelpnanna í dag sem er í gangi núna hef ekki fengið neitt sms frá Elvu systir ennþá svo þeta er allt í góðu ennþá;) Djöfulsins snilld ef þær komast upp og ég heyrði i hörpu í gær og það var svona líka mikil stemmning í bænum fyrir þennan leik;) Afhverju fór ég aldrei að æfa fótbolta vildi óska þess!!!!! er búin að biðja Hemma að taka mig einkakennslu svo ég geti bara farið og skellt mér svo á æfingu!!!! Mér heyrist hann ekki vera jafn jákvæður og bjartsýnn á gott gengi hjá mér í þessum bransa!!!! Ætli hann sé ekki bara hræddur um að ég verði betri en hann hahahha;) En best að klára þetta svo maður komist einhverntíman heim í kvöld !!!!;) Ég er að senda ykkur góða strauma stelpur ÁFRAM VÖLSUNGUR

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 11:00:54 / harpa

Afturelding-Völsungur 2-3:)

Þá er fyrsti skóladagurinn í HÍ búin...já þetta er svona nett öðruvísi en að vera bara í chillinu í FSH!! Sem betur fer þá erum við Erla saman í þessu, shit hvað það er væri stressandi að vera bara alein og þekkja engan, í dag fórum við td í 2 tíma..annar tíminn var í hóskólabío í sal 1 ( sem er stóri salurinn) þannig að við vorum svona 200 í þessum tíma...vá hvað ég hefði verið e-ð kjánaleg ef ég hefði þurft að fara ein...En já á þessum fyrsta degi er nóg að lesa fyrir daginn á morgun og strax komið eitt skilaverkefni þannig að þetta fer vægast sagt hratt af stað. Annars leggst þetta bara mjög vel í mig og ég held að við stöllur eigum eftir að vera fínar þarna í félagsráðgjöf;)

            Þið verðið hins vegar bara að vera þolinmóð við hana Bryndu, því að við vinkonurnar erum nú þegar búnar að búa okkur undir að sjá hana fremur lítið í vetur því að stelpan í tannlækninum þannig að það er nóg að gera hjá henni, strax byrjuð að fara á bókhlöðuna og læra eins og brjáluð, enda bara 6 sem að komast inn í þessu...þannig að hún hefur afsökun á að vera ekki dugleg að blogga:)

 

Ég er hins vegar búin að vera veik síðan á fimmtudaginn , get ekki beint sagt að þetta hafi verið mest hressandi dagar í mínnu lífi...ég fékk fyrst bara hálsbólgu en svo kom hiti og beinverkir og hálsbólgan varð alltaf bara meiri og meiri, á laugardagskvöldið var ég svo við það að láta lífið úr gremju bæði út af því að daginn eftir (í gær) var mikilvægasti leikur sem ég hef keppt og það stefndi allt í að ég gæi ekki spilað hann og mér fannst bara eins og það væri að lokast fyrir hálsinn á mér og ég ætti bara ekkert að fá að anda!! Þannig að Kjarri mælti með því að við myndum kíkja upp á læknavakt....læknirinn leit síðan upp í mig í svona 10 sek og var ekki lengi að sjá að þetta voru strepptakokkar (eða hvernig sem það er skrifað;)!!! Ég fór heim með allt heimsins þunglyndi með mér því að ekki mundi ég spila leikinn á morgun með þetta ógeð!!!! Morgunin eftir þegar ég vaknaði var ég aðeins skárri enda komin á lyf þannig að ég ákvað að fara að borða með stelpunum  og sjá svo til með leikinn... Ég og Beggi komumst svo að sameiginlegri niðurstöðu um að ég mundi byrja leikinn og sjá svo bara til, sem betur fer segi ég núna því ég fann valla fyrir þessu í fyrri hálfleik en var reyndar mjög illt í seinni hálfleik!!! En það skiptir engu máli því að við UNNUM þennan leik svo glæsilega og ég held ég hafi aldrei spilað jafn skemmtilegan leik!!!! Þetta var svo gaman að ég get eiginlega ekki lýst því, við lögðum okkur allar 110% fram og ætluðum okkur að vinna allan tímann, stuðningurinn sem við fengum var SNILLD, takk æðislega fyrir sérstaklega 3 flokkur kvenna;);) Æji shit það var  bara svo gaman að vinna þennan leik:D:D:D:D:D

            Næsti leikur er á miðvikudaginn heima ég held kl 16:30 endilega að fjölmenna á völlinn því að ef við vinnum þennan leik þá erum við að tala um landsbankadeildina á næsta ári kæra fólk;)

 

Ég er að koma heim á morgun og ég verð að viðurkenna að mér hlakkar bara alveg helling til þó að ég sé nýfarin, ætla að eyða sem mestum tíma á leikskólanum því ég sakna svo litlu dúllunum þar, svo auðvitað bara gíra mig upp fyrir leikinn:) Vonandi verð ég búin að ná þessari hálsbólgu alveg úr mér...

 

Og Linda þú mátt endilega vera búin að eiga barnið áður en ég kem hehe;);)

 

later

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 19:45:33 / harpa

Komnar aftur á stjá í bloggheiminn..

Jæja við Buffalo höfum ákveðið að hefja aftur störf þar sem við erum báðar fluttar aftur í borgina og við viljum að okkar nánustu geti fylgst með okkur;)
Reyndar er stefnan tekin á að búa til nýja blogg síðu sem er miklu tæknilegri og betri, en við sjáum hvernig það fer...

Annars er bara gott að frétta af okkur, erum báðar bara að koma okkur fyrir á nýjum heimilium og svona að reyna að komast í skólagírinn...Fórum einmitt í dag að kaupa bækur og ég held að Brydda hljóti verðlaunin þyngsta bók ársins, já The Cell er sko klárlega efst þar á lista;)

Ætla bara að hafa þetta svona stutt núna...

Eitt að lokum..

AFTURELDING- VÖLSUNGUR kl 14:00 á sunnudaginn næsta;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 15:58:46 / Bryndís

********Summar-Love**********

Já ég veit ekki með hana Hörpu grút en ég er allavega komin í sumarfrí í bloggheiminum:) aldrei að vita nema maður fari að blogga aftur í haust:) hafið það gott í sumar krúttmúffur:)

Bryndís segir over and out og njótið sólarinnar í sumar :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2007 12:00:00 / Bryndís

********Áfram Völsungur********

Allir á Völlinn í dag þar sem hin undurfagra Harpa mun leika á alls oddi ásamt fleiri fallegum Völsungsstúlkum!!!! Þið eruð BESTAR held að þið malið þetta í sumar:)

VÖLSUNGUR  vs  TINDASTÓLL

Segið svo ekki að ég sé ekki með boltann á hreinu hahahaha;)

Sjáumst á vellinum í dag

Blogg kemur þegar við nennum!!! en bloggandinn hefur sko ekki verið að fanga mig síðustu daga og veit ekki hvort hann á eftir að koma til með að gera það í sumar!! kemur í ljós:)

Áfram Völsungur!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 01:55:08 / harpa

Gunni og Óli PRIK;)

Fyrst að ég er nú bara eins og versti auðnuleysingi að gera ekki neitt þessa dagana þá ætti ég nú að geta fundið mér tíma til að blogga smá...Bryndís hefur nebbla löglega afsökun fyrir litlu bloggi því að gellan er byrjuð í nýrri vinnu, stefnir hart að því að feta í fótspor Helgu (mömmu Einars Gests) Bankadama með meiru;)
Á meðan chilla ég bara þangað til 1 júní og fer þá í mjög krefjandi starf , bara nákvæmlega það sama og ég er búin að vera að gera í haust, gæta barna annara.... Vá hvað ég sakna einmitt barnanna minna í reykjavík þetta er ekki að gera sig, hefði aldrei trúað því að ég gæti saknað þeirra svona mikið... Er einmitt að fara að skella mér í borgina á föstudaginn og vonandi get ég þá kíkt á þau:)

En við í mfl kepptum okkar fyrsta leik í deildinni á mánudagskvöldið, leikurinn fór fram í höllinni á Reyðarfirði og var á móti Hetti!! Ég var svo heppin að meiðast skemmtilega á ökla þegar við fórum í æfingarferðina þangað fyrir rúmlega 2 vikum og var og er ekki enn búin að jafna mig eftir það!!!! En Beggi vildi hafa mig með í þessum blessaða leik, hefði betur sleppt því vegna þess að ég var bara eins og illa gerður hlutur þarna inn á og gat mjög lítið gert því að í hvert skipti sem ég sparka í bolta er ógeðslega vont!!!Þannig að þetta var mjög skemmtilegur leikur eða þannig, við vorum frekar slakar og rétt náðum jafntefli 1-1, Gulla smurði hann með smjörva í hornið þegar það voru svona 10 sek eftir;) Næsti leikur er svo hér heima um helgina á móti Tindastól veit ekki hvort að ég verð með í honum, efast um það en ætli ég leyfi Begga ekki að ráða því....Allir að mæta á völlinn á laugardaginn og nota smá af þessari rödd sem þið hafið;)

Við Buffalo skelltum okkur á ball um helgina ásamt Erlu Björk , sátum í rólegheitum heima hjá Erlu og spjölluðum helling , plönuðum einmitt slatta að gera yfir sumarið, spurning hvað verður gert af því sem var ákveðið;) Erla á það nebbla til að plana alveg helling og gera svo e-ð minna af því hehe;) En ég hef fulla trú á þessu sumri og að við vinkonurnar verðum ofurduglegar að láta gott af okkur leiða, sérstaklega þegar að Gnes og Jóna koma heim og svona;) En já fórum edrú á ball , reyndar breyttist planið smá og ein okkar var búin að fá sér aðeins í aðra í lok kvölds;) Alltaf jafn gaman að fara svona edrú á ball..Eitt sem fór agalega í taugarnar á mér sem ég tók eftir því ég var edrú, hef bara held ég ALDREI tekið eftir þessu þegar ég er undir áhrifum en það er bara ekki hægt að dansa á þessu blessaða dansgólfi, því að það er alltaf verið að ýta á mann eða hreinlega bara detta á mann!!! Shit hvað þetta er pirrandi, mæli eindregið ekki með að fara edrú á ball ef þú ætlar að taka múv á dansgólfinu... Ingvar á nottla bara met í því að koma við ALLA sem að stíga fæti inn á dansgólfið hehe það fer svoltið fyrir þessari elsku þegar hann ákveður að taka sporið svona alveg edrú og fínn;) Það er samt fyndið þegar maður er edrú hvað maður tekur eftir mörgu misgáfulegu hjá fólki, marg mjög skemmtilegt sem að ég tók eftir þetta kvöldið... stelpum að kyssast, sumir sem eru alveg að fara á mis við að dansa í takt, smá drama, daður sem að á ekki að eiga sér stað og margt fleira mjög skemmtilegt;) Eitt annað sem ég mæli ekki með að fólk geri ef það ákveður að vera edrú og það er að koma á bíl, ég lennti skemmtilega í því að skutla heim og var ekki komin heim fyrr en undir morgun..Mætti síðan alveg galvösk á æfingu kl 10:30 um morguninn...

Mér heyrist síðan á fólkinu að það sé djamm aftur um þessa helgi, er ekki búin að gera það upp við mig hvort ég taki aðra edrú helgi á þetta og haldi mig þá fjarri dansgólfinu eða hvort maður sturti í sig og verði helluð eins og Síjó mundi orða þetta;) Finnst fyrri valkosturinn mun líklegri þó....

En nú er ég að spá í að fara að sofa, því ég þarf að vakna í bítið á morgun eða um 1;)

Góða nótt:*

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 18:00:17 / harpa

Styttist í heimkomu;)

Ég get nú ekki annað en að taka fallega á móti þessari áskorun frá Bryndísi slátri og koma með blogg....Ég er nebbla alls ekki horfin af yfirborði jarðar, er enn í góðum gír hér í borginni, styttist samt voðalega í að ég komi heim , já eiginlega bara alltof stutt ég kem á föstudaginn næsta...Ef að einhver vill fara á hú á föstudaginn þá má viðkomandi endielga fá far hjá mér, er nebbla að keyra ein:/Væri eiginlega pínu til í að vera hér aðeins lengur en það er leikur á mánudaginn og ég verð nú að vera búin að ná einhverjum æfingum með stelpunum;)
Teigaselið er orðin fáránlega tómlegt eftir að Ína fór heim, enda eyði ég sem minnstum tíma hér núna!! Er svona aðeins að byrja að pakka niður og er einmitt að læra að lifa með þeirri staðreynd að kanski á ég bara allt of mikið að fötum og skóm eftir allt saman!!! Shit þetta er illa fáránlega mikið magn...Þrifin eru síðan alveg að fara að byrja og ég bara get valla beðið eftir að þrífa það er svo rosalega gefandi og gaman;) Ef að einhver vill eiga skemmtilega stund í Teigaselinu þá er honum velkomið að koma og taka þátt í bráðskemmtilegum þrifum;);)

“Síðasta” helgin mín í rvk...fór ekki alveg eins og ég hafi skipulagt hana:/ á föstudeginum skellti ég mér í smá heimsókn til Keflavíkur , Haddi og Baldur buðu mér í mat, nenntu samt ekki að elda þannig að boðið var upp á pantaða pizzu,reyndar mjög góða;) Náði reyndar ekkert að hitta Kittu í þessu stoppi mínu því það var svo stutt!!! Verð að bæta þér það upp seinna elskan;) Þegar ég kom til baka í rvk fór ég til Kjarra að horfa á lokaþáttinn í Dexter góðir þættir btw!!!
Laugardagurinn var síðan allt öðruvísi en hann átti að vera, ég ætlaði að fara í júró partý til Elsu frænku og draga Helgu Bryndísi með mér;) En ég fékk símtal þar sem að ég var boðuð á ak tils að keppa á móti Hömrunum í boganum, þannig að ég ákvað að júró djammið yrði tekið heima á hú í staðinn.... Hefði samt betur geta sleppt því að mæta í þennan leik því að ég var enn að drepast í öklanum , spilaði samt smá og er enn verri fyrir vikið!!! Mjög gaman í ljósi þess að það er vika í næsta leik. Nú tekur bara við sjúkraþjálfun sem vonandi getur hjálpað e-ð;) Því ég verð ógeðslega pirruð ef ég get ekki spilað þennan leik!!!!!! Allavega við unnum samt Hamrana samfærandi 6-0 ;)
Júró djammið var síðan bara snilld, hittumst hjá Áslaugu nokkrar vel valdar stelpur og vá hvað þetta var gaman;) Ballið var líka fínt, var samt ekki alveg edrú á því en náði samt að skemmta mér bísna vel, labbaði upp í brekku eftir ball og aftur niður á bauk veit ekki alveg hvað vakti fyrir mér þá fór síðan til Áslaugar og gisti þar því að hún var ein heima:) Thanks allir sem að gerðu þetta kvöld svona skemmtó;)
Það sem náði samt að gleðja mig mest um helgina var litla undurfallega stelpan hjá Friðrik og Lilju...ég náði að kíkja til þeirra áður en leikurinn byrjaði á laugardaginn...úffff hvað hún er falleg, ég gat eiginlega ekki tekið augun mín af henni.. Shit hvað ég hlakka mikið til að flytja nær henni;) vá ég get eiginlega bara ekki líst því hvað mér finnst hún falleg;)

En jæja það væri kanski ekki vittlaust að fara að reyna að pakka e-ð niður eða laga hér aðeins til....eitt að lokum, það er alveg leyfilegt að kommenta;)

Later;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 09:47:18 / Bryndís

Yfir land og sjó

Mikið rosalega finnst mér skrítið að vera að vinna síðasta vinnudaginn minn hér í Reykjavík!!
Það verður erfitt að kveðja fólkið sem maður er búinn að kynnast hérna í vinnuni!! maður verður víst að velja og hafna í lífinu!!! en ég er bara spennt að fara að byrja í nýrri vinnu og koma heim til Húsavíkur í rólegheitin :)

Ég á pantað flug heim kl: 14:00 að staðartíma og kíki þa á Prinsessuna hjá L&F og bruna svo heim til Húsavíkur:) Þar verður mjög líklega opnaður bjór fljótlega og svo er aldrei að vita nema maður kíki í partý til Mattos um kvöldið hann verður víst með innflutningspartý:)

Hvernig á maður að geta pakkað öllu sínu hafurtaski svona í eina ferð  þetta er bara ekki að ganga upp og ég sé ekki ennþá fyrir hvernig ég á að koma þessu öllu heim!!! held ég sé ekki með nema um 20pör af skóm og svo öll fötin mín snyrtidót útiföt og margt fleira smávægilegt en þó nauðsynlegt!!! veit einhver um far fyrir kanski eins og eina tösku norður sem fyrst?? ég held ég komist aldrei með þetta allt í flug án þess að þurfa að borga marga tugi þúsunda!!

Júró í gær......... mér fannst nú Eiki standa sig ágætlega!!! ekkert samt varið í lagið svona á ensku... þó það sé nú ekki meira en ágætt á íslensku! en við munum held ég aldrei komast upp úr þessari undankeppni!!!

Ég blogga nú sennilega ekki aftur fyrren ég verð komin norður!!! vil samt skora á Hörpu Grút að koma með næsta blogg ef hún er þa ekki horfin af yfirborði jarðar!!!!:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 10:58:18 / Bryndís

Fagravík:)

 Jæja ég ákvað bara að panta mér flug norður:) fékk svo ódýrt!!! Lendi á akureyrarflugvelli eitthvað um 15:00 og þá ætlar Erlan að koma að sækja mig og ég ætla svona helst að reyna að kíkja á prinsessuna hjá Friðriki & Lilju:) svo er bara brunað heim og kosið (er reyndar búin að kjósa) og svo opnað bjór og horft vonandi á júró hef fulla trú á að Eiki Hauks komist áfram:) Það er samt erfitt að fara vildi óska að Hemmi gæti komið með mér norður það væri bara snilld:) verður erfitt að skilja þessu elsku efir ;) en ég er viss um að allir sem eru í RVK hugsi vel um hann:)  

Guð það er svo óhugnalega margt sem á við mig í sambandi við stjörnumerkið!!!:) Þið sem þekkið mig vel ættuð að sjá það ef þið lesið þetta hérna að neðan;)

Meyjan

Árstími Meyjunnar er í lok sumars. Þá hefur gróðurinn náð blóma og ávextir jarðarinnar þroska. Meyjan er því fædd á frjósömum uppskerutíma, tíma athafnasemi, vinnu og undirbúnings fyrir komandi haust og vetur.


Jarðbundin og dugleg

Hin dæmigerða Meyja er jarðbundin og raunsæ. Hún hefur sterka rökhugsun og sérstaka hæfileika og áhuga í sambandi við viðskipti, miðlun, menntamál og þjónustustörf. Meyjan er iðulega dugleg og iðin og á oft erfitt með að sitja kyrr og slaka á. Sumar Meyjur taka til dæmis aldrei frí eða fara að vinna eitthvað annað í fríinu og fá samviskubit ef þær hafa ekki eitthvað fyrir stafni. Oft er Meyjan eirðarlaus og þá einkennist framkoma hennar af hreyfanleika, málgefni og vissu stressi.


Skýrleiki

Meyjan hefur skarpa hugsun og það er algengt að sjón hennar sé með afbrigðum skýr, þ.e.a.s. hún sér veikleika í skýru ljósi og er meðvituð um útlit, klæðaburð og hegðunartakta fólks. Hún er nákvæm og sér einstök smáatriði hvers máls. Nákvæmni á smáatriði er það mikil að stundum tekur hún ekki eftir heildarmyndinni, trén skyggja þá á skóginn. Meyjan er einnig næm á hið líkamlega, á líkama sinn og útlit, og það sem hún borðar og lætur ofan í sig. Áhugi á mataræði, heilsumálum, líkamsrækt og hollustu er því algengur.


Fullkomnunarþörf

Eitt sterkasta einkenni Meyjunnar er fullkomnunarþörf. Ekkert er nógu gott. Alltaf þarf að laga og betrumbæta. Hún gerir því miklar kröfur til sín (og annarra) og finnst að hún þurfi stöðugt að vanda sig og ná fullkomnu valdi á viðfangsefnum sínum. Þessi fullkomnunarþörf er bæði blessun og bölvun. Hún leiðir til þess að Meyjan á til að vanmeta sjálfa sig en einnig til þess að hún leysir verkefni sín vel af hendi og er treystandi fyrir því sem hún á annað borð tekur að sér.


Skörp hugsun

Meyjan hefur að upplagi raunsæja og gagnrýna hugsun og sérstakan hæfileika til að greina mál í smáeiningar, raða niður í flokka og leita að villum. Meyjan er hinn fæddi gagnrýnandi. Hugsun hennar er einnig vel til þess fallin að læra tungumál eða leggja stund á fræðistörf. Auðvitað fást ekki allar Meyjar við slík mál en samt sem áður búa þær yfir þessum eiginleikum. Ef þær fást ekki við fræðilega gagnrýni taka þær í staðinn vini sína, ættingja eða vinnufélaga fyrir og finna veikleika í fari þeirra, oftar en ekki í þeim tilgangi að hjálpa eða laga það sem Meyjan telur að hafi farið miður.


Viðskipti

Meyjan hefur oft áhuga á verslun og viðskiptum, enda ríkt í eðli hennar að vilja framkvæma og hreyfa við hlutum, eða láta málin ganga áfram. Kyrrstaða er andstæð eðli hennar, enda er Meyjan breytilegt merki sem þarf á hreyfingu og fjölbreytni að halda. Hún verður eirðarlaus ef hún hefur lítið fyrir stafni. Meyjan hefur í raun gaman af því að vinna, kannski vegna þess að hún á erfitt með að vera kyrr. Eitt helsta einkenni margra Meyja er að vera á sífelldum þönum, hlaupandi fram og aftur, alltaf að gera eitthvað.


Vinna og árangur

Til að næra lífsorku sína þarf Meyjan að sjá eftir sig áþreifanlegan árangur. Ef hún er fræðimaður er æskilegt að hún geti bent á bók sem hún átti þátt í að semja, ef hún er handverksmaður þarf hún að sjá verk sín í notkun. Ef til vill þarf hún fyrst og fremst að hafa það á tilfinningunni að starf hennar hafi tilgang og gagnist öðrum. Meyjan er merkið sem hefur það verkefni að koma uppskerunni í hús og búa í haginn fyrir komandi haust og vetur. Hún þarf að vinna


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 16:16:33 / Bryndís

Attention Please!!:)

Ef það er einhver sem veit um far norður einhverntíman næstu helgi þá má sá hinn sami vinsamlegast láta mig vita þar sem mig vantar far norður!!!:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 10:07:05 / Bryndís

Hann sagði að ég væri Drekinn!!

Takk fyrir kommentin!!! Við viljum svo endilega að fólk verði svona almennt duglegra að kvitta;)

Það styttist í Húsavíkina! ég er ekki alveg búin að ákveða hvort ég keyri með Hörpu á Þriðjudaginn 15maí eða hvort ég komi einhverntíman fyrr!!! Veit ekki! veltur allt á klippingu og fleira þarf að fara að gera eithvað við hárið á mér!! Verður örugglega skrítið að flytja aftur til Mö og Pa en samt gott held ég:)

Það er allt bara undir control í Víkurásnum Húsbóndinn búinn að setja upp eldhúsborðið og stólana nýju og stofuborðið við misgott geð hjá mér haha ég er alltaf svo elskuleg undir pressu!!! en þetta tókst hjá okkur á endanum auðvitað og allt orið rosa fínt hjá okkur:)

Friðrik og Lilja eignuðust litla prinsessu í gærkvöldi og viljum við Buffalo óska þeim til hamingju með hana get ekki beðið eftir að sjá hana !!! örugglega falleg eins og foreldrarnir;)

Svo erum við nokkrar ´86 módel hér á suðurlandinu að fara að hittast á laugardagskvöldið heima hjá mér ef við erum að gleyma einhverri sem býr hér á suðurlandi eða er stödd í rvk á laugardaginn máttu vinsamlegast mæta á laugardagskvöldið klukkan 9:) hverjar ætla að mæta???

Við Hemmi vorum að fá Fóstbræðraþættina alla á flakkarann hjá okkur og HRIKALEGA eru þetta fyndnir þættir jesús minn!!!

Hef þetta samt bara stutt núna ætla að fara ða gera eitthvað í vinnuni:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 20:06:35 / Bryndís

Hvar eru kommentin folks???

Við höfum ákveðið að draga okkur

 í hlé í bloggheiminum þangað til

við fáum komment frá minnst

20manns!!!!

 

Buffalo8)


» 23 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 17:51:05 / harpa

"Afhverju fékk The HOLIDAY ekki neinn óskar??"

Jæja ætli það sé ekki komin tími til að ég skelli inn bloggi á þessa yndislegu síðu okkar Buffalo:) Er í einhverju gífurlegu bloggletikasti hef ekki bloggað síðan um páska.. spurning um að Buffalo taki sér jafnvel sumarfrí í sumar, við erum jú búnar að vera starfandi síðan í nóvember 2004, held það hafi nú ekki margir unnið stanslaust í næstum 3 ár án þess að taka sér neitt frí!!! Sérstaklega ekki í svona krefjandi vinnu eins og við erum að sinna með þessari síðu;)

En svona fyrir utan bloggleti mína er bara allt ljómandi að frétta úr borginni;) Við Buffalo erum svipaðar bara, programm dagsins er svona oftast morgunæfing, vinna og svo bara e-ð chill á kvöldin;) Búin að vera bara bísna rólegar eftir páskadjammið höfum ekkert kíkt á djammið hér í borginni og ég er held ég ekkert að fara að gera það á næstunni því það er altaf leikur á fokking sunnudegi!!! En við Ína stefnum á að hafa eitt gott teiti hér í selinu áður en við flytjum heim... Sem að styttist reyndar óðum í, ég held ég flytji heim í kringum 15 maí , vá hvað það er stutt!!! Verð eiginlega að segja að ég er jafn spennt að koma heim eins og mér finnst leiðinlegt að fara héðan;/ Get ekki beðið eftir að komast heim til fjölskyldunnar , vinanna, liltu “barnanna” minna og svo síðast en ekki síst fara að æfa aftur fótbolta með mínu liði;) Hins vegar finnst mér mjög leiðinlegt að fara frá vinnunni minni hér, stelpunum sem ég er búin að kynnast, yndislega heimilinu mínu hér sem ég á ekki eftir að koma í aftur og svo eitt enn sem er ekki til umræðu;)

Annars er planið um helgina frekar þétt setið, Anna mín og Gunnar komu í bæinn í gær, rómó helgi hjá parinu;) Ég ætla nú samt að fara með þeim út að borða með þeim á eftir enda er ég nottla svona eiginlega 3 hlekkurinn í þessu sambandi;);)
Á morgun er ég svo að fara upp í Bláfjöll að gera eiginlega uuu ég veit það ekki alveg... Baldur hennar Fríðu hringdi í mig í gær og bað mig að koma og vera e-ð módel ásamt Fríðu og einhverjum stelpum í einhverju verkefni sem hann er að gera...Svona plat auglýsing fyrir Nikita, eigum að vera á snjóbrettum;) Það verður öruggla mjög gaman..ár og öld síðan að ég hef farið á bretti samt;) Annað kvöld verður síðan bara í rólegri kantinum bío eða vídeo því það er leikur á sunnudaginn á móti Fjölni...Spiluðum einmitt á móti ÍBV 2 flokki um daginn og unnum loksins 6-1;)

Annars verð ég bara að deila með ykkur ást minni á Man utd, þetta lið mitnnti mig á það á þriðjudaginn hvað ég er ástfangin af því, rosalegt þegar maður verður svona ástfangin.;) Hefði alveg verið til í að láta lífið fyrir að fara á leikinn sem að einmitt Guðmundur og Ingvar skelltu sér á, en þar sem að ég á MJÖG fáar vinkonur sem hafa jafn mikin áhuga á fótbolta og ég þá var e-ð lítið um stelpur sem að langaði að fara með mér:/ Guðmundur og Ingvar gistu einmitt hér í selinu hjá mér áður en þeir fóru út, held ég hafi aldrei vakað svona lengi á virku kvöldi áður, við vorum vakandi til hálf 6!!!! Ég var alveg í gírnum í vinnunni daginn eftir, sjaldan verið svona hress;) Annars er ég reyndar farin að halda með liði í 1.deild líka, Cardiff er málið þar skal ég segja ykkur;)

En jæja ætla að fara að græja þvottinn okkar ( húsmóðir.is) er síðan að græja myndirnar síðan af páskadjamminu set þær inn um leið og ég get;)

GÓÐA HELGI:*

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 16:51:23 / Bryndís

Bloggleti alveg hreint

Ég er ekki að nenna að blogga

*Helgin var fín
*Elduðum með Hadda, Baldri og Hörpunum tveimur
*Stelpan mín...... Freysi og Baldur að gera góða hluti í söngkeppni VMA
*Keyptum okkur stofuborð
*Keyptum okkur líka eldhúsborð og stóla
*Fengum stofuborðið frítt, gleymdist að skanna það inn
*Nennir einhver að gefa mér gott ráð til að spara peninga
*Nenni nefninlega ekki að vera á kúpunni í haust í Háskólanum
*Stutt í Húsvískt sumar
*Kem sennilega þarna í kringum 12-13maí
*Landsbankinn, Bakaríið, Ís, Sól, Sund, grill, djamm, gaman
*Langar að fá Hemma með mér norður (það er víst ekki í boði)
*Nenni ekki meiru

Best að klára vinnudaginn í sumarfýling:)


:sUN_ObrUA950cM:http://scitec.uwichill.edu.bb/bcs/courses/Biology/BL14A/Images/happy%2520sun.gif" alt="" width="142" height="140">

P.s jæja '86 gellur eigum við eitthvað að hittast áður en við förum norður eða hvað???:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19